Persónuverndaryfirlýsing Ancestry

Tekur gildi: 18. september 2023

Samantekt á breytingum

Samantektinni hér að neðan er ætlað að gera samantekt á nýjustu breytingum á persónuverndaryfirlýsingu Ancestry og hvernig breytingarnar geta haft áhrif á þig. Sérstaklega:

  • Við bættum við setningum til að fara frekar eftir skilyrðum California Privacy Rights Act laganna („CRPA“), Virginia Consumer Data Protection Act laganna („VCDPA“), og annarra laga og reglugerða Bandaríkjanna og hinna almennu gagnaverndarlaga Brasilíu („LGPD“);
  • Við tókum Forces War Records, alþjóðlegt merki okkar sem sérhæfir sig í hernaðarsögu, inn í persónuverndaryfirlýsingu Ancestry;
  • Við tókum fram að við söfnum nú fæðingardegi en ekki bara fæðingarári varðandi AncestryDNA-prófskráningu til að hjálpa okkur að segja til um hver á hvaða reikning; og
  • Við gerðum breytingar hér og þar í persónuverndaryfirlýsingunni til að stuðla að gagnsæi og lesanleika.

Hjá Ancestry er friðhelgi einkalífs þíns í forgangi. Ancestry hefur einsett sér að hafa góða umsjón með persónuupplýsingum þínum (skilgreint hér að neðan), meðhöndla þær á ábyrgan hátt og tryggja öryggi þeirra í gegnum stjórnunarferla og tæknilegar, skipulagslegar og efnislegar verndarráðstafanir.

Við trúum á nauðsyn þess að koma fram af heiðarleika, hreinskilni og gagnsæi þegar kemur að gögnunum þínum. Að þessu leiti fylgir Ancestry þremur meginreglum:

  • Gagnsæi. Við vinnum hörðum höndum að því að vera gagnsæ varðandi þær Persónuupplýsingar við söfnum og vinnum.
  • Einfaldleiki. Við reynum að nota auðskiljanlegt orðalag til að lýsa persónuverndarreglum okkar, svo þú getir tekið upplýstar ákvarðanir.
  • Stjórn. Við leyfum þér að stjórna því hvaða persónuupplýsingar þú veitir okkur, þ.m.t. DNA-gögnin þín (eins og þær eru skilgreindar hér að neðan), auk þess getur þú stýrt hvernig við notum gögnin, miðlum þeim og geymum þau.

 

Þegar þú notar þjónustu okkar

Þú hefur áfram stjórn á þínumm lífræðisýnum og DNA-gögnum, þú getur stýrt þeim og eytt þeim samkvæmt því sem lýst er í þessari persónuverndaryfirlýsingu. Þú gætir uppgötvað óvæntar staðreyndir um sjálfa(n) þig eða fjölskyldu þína þegar þú notar þjónustuna okkar. Þegar greint hefur verið frá slíkum uppgötvunum þá getum við ekki afturkallað þær.

Þessi perónuverndaryfirlýsing nær yfir Ancestry vefsíður, þjónustu og farsímaforrit sem tengjast þessari persónuverndaryfirlýsingu, þ.m.t.: Ancestry®, AncestryDNA®, Fold3®, Newspapers.com™, Archives®, We Remember®, Forces War Records og Find a Grave®. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu vísum við til þessara vefsíða og þjónustu og farsímaforrita með einu orði sem „Ancestry“.

Viðskipavinir í BNA. Persónuverndaryfirlýsingin fyrir bandaríska viðskiptavini inniheldur aukalegar upplýsingar fyrir íbúa Bandaríkjanna þ.m.t. íbúa Kaliforníu, Colorado, Connecticut og Virginíu.

Viðskiptavinir utan BNA. Ancestry Ireland Unlimited Company er ábyrgðaraðili gagna þinna og kafli 8 hér að neðan inniheldur upplýsingar um réttindi þín.

 

Efnisyfirlit

 
1.   Kynning
2.   Stofnun reiknings og samskipti þín við þjónustu Ancestry
3.   Hvaða persónuupplýsingum safnar Ancestry frá þér?
4.   Hvaða upplýsingum safnar Ancestry í gegnum notkun þína á þjónustunni?
5.   Upplýsingar sem við söfnum frá öðrum aðilum
6.   Hvernig notar Ancestry persónuupplýsingarnar þínar?
7.   Hvaða upplýsingum deilum við, hvenær deilum við þeim og hverjir eru viðtakendurnir?
8.   Réttindi þín og val í tengslum við persónuupplýsingar þínar
9.   Hverjar eru reglur okkar varðandi varðveislu gagna?
10.   Hvernig get ég eytt persónuupplýsingum mínum?
11.   Öryggi
12.   Alþjóðlegur gagnaflutningur
13.   Breytingar á þessari yfirlýsingu
14.   Lagalegur grundvöllur samkvæmt Almennu persónuverndarreglugerð ESB varðandi vinnslu persónuupplýsinga íbúa ESB
15.   Auðkenni og tengiliðaupplýsingar ábyrgðaraðila gagna
16.   Aukaleg persónuverndarstefna fyrir íbúa Bandaríkjanna (viðskiptavinir í Kaliforníu, Colorado, Connecticut og Virginíu)
17.   Aukaleg persónuverndarstefna fyrir Ástralíu
18.   Aukaleg persónuverndaryfirlýsing fyrir Brasilíu

 

1.  Kynning

Til að viðhalda og bæta vefsíður, farsímaforrit og þjónustu (sameiginlega „Þjónustan“), söfnum við, vinnum og geymum "Persónuupplýsingar", sem eru upplýsingar sem nota má til að bera kennsl á þig með beinum eða óbeinum hætti, eins og nánar er lýst í kafla 3. Persónuupplýsingar eru t.d. nafn, netfang eða heimilisfang, eða upplýsingar sem hægt er að tengja aftur við þig, þ.m.t.Erfðafræðilegar upplýsingar. Þessi persónuverndaryfirlýsing lýsir starfsháttum okkar við söfnun sem og geymslu og vinnslu persónuupplýsinga þinna og þær stýringar sem við veitum þér aðgang að til að hafa umsjón með persónuupplýsingum þínum innan þjónustunnar okkar þ.m.t. rétt til að mótmæla ákveðnum tegundum vinnslu. Þessi persónuverndaryfirlýsing innihledur vafrakökurstefnu okkar, sem lýsir notkun okkar á vafrakökum og svipaðri rakningartækni.

Upplýsingar um látna einstaklinga teljast ekki sem persónuupplýsingar samkvæmt þessari persónuverndaryfirlýsingu.

 

2.  Stofnun reiknings og notkun á þjónustu Ancestry

Þegar þú stofnar reikning munum við safna, vinna úr og deila persónuupplýsingum þínum (þ.m.t. erfðafræðilegum upplýsingum ef þú hefur tekið DNA-próf) samkvæmt lýsingu í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

 

3.  Hvaða persónuupplýsingum safnar Ancestry frá þér?

Þær persónuupplýsingar sem við fáum afhentar og varðveitum velta á hvernig þú notar þjónustuna. Við þörfnumst ákveðinna upplýsinga til að veita þér þjónustuna í samræmi við skilmála Ancestry en án þeirra munum við ekki geta veitt þér þjónustuna.

Upplýsingaflokkur Lýsing
Reikningsupplýsingar
  • Nafn þitt (nauðsynlegt);
  • Netfang (nauðsynlegt);
  • Aðgangsorð sem þú býrð til (nauðsynlegt);
  • Ákveðin vörumerki Ancestry gætu stutt innskráningarþjónustu þriðja aðila eins og Facebook, Google og Apple sem veita Ancestry persónuupplýsingarnar þínar, svo sem nafns þíns og netfangs og prófílmynd; og
  • Þú getur látið okkur hafa símanúmer til að við getum (i) látið þig vita af niðurstöðum úr AncestryDNA-prófi; (ii) hjálpað þér þegar þú hefur samband við þjónustu Ancestry fyrir meðlimi („þjónusta fyrir meðlimi“), (iii) heimila þér að nota fjölþátta auðkenningu.
Kreditkorta-/greiðsluupplýsingar

Greiðslu- og reikningsupplýsingar, svo sem kreditkortanúmerið og heimilisfang greiðanda og sendingarheimilisfangið, þegar skráir þig í ókeypis prufuáskrift eða kaupir vöru eða aðgang svo sem Ancestry-áskrift eða AncestryDNA-prófunarbúnað.

Upplýsingar um AncestryDNA-prófunarbúnað Þegar þú skráir AncestryDNA-prófunarbúnað, söfnum við:
  • Skráningarkóðanum sem er tengdur við AncestryDNA-prófunarbúnaðinn;
  • Kyni þínu við fæðingu; og
  • Fæðingardegi.
Prófílupplýsingar

Við söfnum upplýsingum sem þú gefur upp þegar þú býrð til notendaprófíl (til dæmis prófílmynd, nafni, notendanafni, ævisögu, aldri, staðsetningu og notendanöfnum tengdum fyrir aðra reikninga). Upplýsingar um Ancestry-notendaprófílinn þinn eru sýnilegar öðrum notendum (eins og það er skilgreint í skilmálunum), þannig að íhugaðu að takmarka þessar upplýsingar og nota notendanafn sem er annað en raunverulegt nafn þitt til að gæta að persónuvernd þinni.

Efnið þitt

Við söfnum persónuupplýsingum sem þú leggur af fúsum og frjálsum vilja til þjónustunnar, þ.m.t. ættartré, myndir, hljóð/myndbandsupptökur, sögur, skýringar á upptökum. athugasemdir, skilaboð og endurgjöf sem veitt er til Ancestry.

Erfðafræðilegar upplýsingar Á rannsóknarstofum samstarfsaðila okkar drögum við DNA úr sýni þínu og umbreytum því í tölvulæsileg DNA-gögn („DNA-gögn“) sem við vinnum úr til að veita þér þjóðernismat og Genetic Communities® tillögur. Við vinnum einnig úr DNA-gögnum þínum til að veita þér upplýsingar í gegnum gáttina um tengsl þín við aðra notendur í DNA-gagnagrunni okkar og hvers kyns erfðamörkum sem tengjast ákveðnum líffræðilegum, lífeðlisfræðilegum, atferlislegum eiginleiku, eða öðrum eiginleikum, svo sem hárþykkt og augnlit eða eiginleika sem tengjast vellíðan.

DNA-gögnin þín og allar upplýsingar sem fengnar eru frá þeim, svo sem þjóðernismat, Genetic Communities tillögur, eiginleikar og erfðafræðileg ættingjasamsvörun eru persónuupplýsingar og er vísað til þeirra sem „erfðafræðilegar upplýsingar“.

Sýni þitt og DNA. Hvorki sýni þitt sem þú veitir með AncestryDNA-prófunarbúnaðinum né útdregið DNA-sýni (sameiginlega er talað um „lífsýni“) teljast persónuupplýsingar samkvæmt þessari persónuverndaryfirlýsingu. Þú getur samþykkt að láta geyma lífsýni þín í lífsýnabanknum fyrir prófanir í framtíðinni. Framtíðarprófanir og rannsóknir gætu farið fram ef þú gefur upplýst samþykki fyrir rannsóknir eða ef þú samþykkir aðrar prófanir á lífsýnum þínum. Ef þú samþykkir ekki að lífsýni þín séu geymd, munum við eyða þeim. Kaflar 8 og 10 lýsa því hvernig þú getur stjórnað lífsýnum þínum. Þú getur beðið um að Ancestry eyði lífsýnunum þínum með því að hafa samband við meðlimaþjónustuna. Við kunnum að eyða lífsýnum sem uppfylla ekki gæðakröfur okkar, að eigin geðþótta.

Heilsutengdar upplýsingar Ancestry er ekki aðili sem fellur undir lög um flutning og ábyrgð sjúkratrygginga (e. Health Insurance Portability and Accountability Act, „HIPAA“), og efni frá notanda hvorki lýtur né nýtur verndar HIPAA.
Samskipti þín Við hýsum og viðhöldum samskiptum þínum við aðra notendur í gegnum tengiliðavalmöguleikanna á verkvangi okkar. Við söfnum upplýsingum þínum þegar þú átt samskipti við þjónustu fyrir meðlimi og stuðningsteymi fyrir aðra þjónustu okkar, þ.m.t. hljóð- og sjónrænar upplýsingar (svo sem upptökur af símtölum sem þú átt við þjónustuna fyrir meðlimi eða upplýsingar sem þú deilir af fúsum og frjálsum vilja þegar þú tekur þátt í neytendavitundarrannsóknum).
Keppnir og kynningar Við söfnum persónuupplýsingum þegar þú tekur sjálfviljug(ur) þátt í keppnum og sérstökum kynningum sem við stöndum fyrir eða styrkjum, en upplýsingar um þær eru veittar þegar þú skráir þig í þær.
Ljósmyndir úr Find a Grave og ljósmyndasjálfboðaliðar Í gegnum Find a Grave (finndu gröf) söfnum við lýsigögnum sem tengjast stafrænum ljósmyndum sem hlaðið er upp í Find a Grave-þjónustuna, þ.m.t. hvar og hvenær myndin var tekin. Ef þú velur að gerast ljósmyndasjálfboðaliði fyrir Find a Grave, gefur þú okkur upp staðsetningu þína sem þú getur breytt eða fjarlægt hvenær sem er.
Vernduð flokkun og viðkvæm gögn Við söfnum upplýsingum sem snúa að ákveðinni verndaðri flokkun, svo sem kyni, kynþætti eða þjóðerni í samræmi við notkun þinni á þjónustunni. Ef þú notar t.d. AncestryDNA þjónustuna munum við nýta DNA-sýnið til að meta þjóðerni þitt. Aðrar viðkvæmar upplýsingar, þ.m.t. kynhneigð, er hægt að álykta í samræmi við efni sem þú setur á þjónustuna.

Til að fá upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem Ancestry vinnur úr og tengjast notendum sem ekki eru hluti af Ancestry skaltu smella hér.

 

4.  Hvaða upplýsingum safnar Ancestry í gegnum notkun þína á þjónustunni?

Upplýsingaflokkur Lýsing
Upplýsingar um tölvu og fartæki

Ancestry safnar upplýsingum um hvernig þú nálgast þjónustu okkar, þ.m.t. vefsíðuna sem þú heimsóttir fyrir og eftir síðu Ancestry.

Við söfnum einnig IP-tölunni sem tölvan þín, farsími eða staðgengilsþjónninn notar til að fá aðgang að internetinu, auk annarra tæknilegra upplýsinga, svo sem:

  • stýrikerfi tölvunnar þinnar;
  • upplýsingar um vafrann þinn;
  • farsímaauðkenni þitt sem stýrikerfi farsímans og farsímanetsins þíns gefa upp; og
  • heiti net- eða fjarskiptaþjónustuaðila þíns.

Ancestry safnar upplýsingum um landfræðilegar staðsetningar úr tækinu þínu með þínu leyfi.

Upplýsingar frá vafrakökum og svipaðri tækni Ancestry notar vafrakökur og svipaða tækni ásamt tæknilegri samþættingu við markaðssetningar- og auglýsingaaðila eins og lýst er í vafrakökurstefnu okkar, sem er hluti af þessari persónuverndaryfirlýsingu. Kynntu þér stefnu vafrakökustefnu okkar til að fræðast um reglur okkar og þær stýringar sem við veitum þér aðgang að.
Upplýsingar sem deilt er í gegnum eiginleika samfélagsmiðla

Ef þú hefur samskipti við samfélagsmiðla í gegnum þjónustuna, til dæmis „Share“, „Post“, „Tweet,“ „Pin“ eða „Follow Us“ tengla á síður eins og Facebook, Twitter, Pinterest, Instagram og YouTube, mun Ancestry safna þessum samskiptum og þeim notendareikningsupplýsingum sem þessi þjónusta veitir okkur, en það er háð persónuverndarstillingum þínum hjá viðkomandi þriðja aðila.

Samskipti þín við þessa eiginleika stýrast af persónuverndaryfirlýsingu viðkomandi þriðja aðila fyrirtæki.

Þú gætir átt möguleika á að skrá þig inn á Ancestry þjónustuna með því að nota samfélagsmiðlareikninginn þinn, svo sem Google eða Apple reikning. Þegar þú gefur viðeigandi heimildir munum við fá upplýsingar um þig af samfélagsnetsreikningnum þínum sem Ancestry mun nota til að búa til reikninginn þinn og byggja upp prófílinn þinn, svo sem nafn þitt, netfang og prófílmynd.

Upplýsingar út frá notkun þinni á þjónustu Við söfnum upplýsingum um notkun þína á þjónustunni, svo sem þegar þú leitar að eða opnar skrár eða opinber ættartré, hvaða síður þú skoðar, tengla sem þú smellir á eða þegar þú bætir fólki við ættartréð þitt o.s.frv., sem við getum notað til að draga ályktanir um upplýsingar um þig sem viðskiptavin og áhugamál þín til að við getum veitt þér betri upplifun, t.d. að veita þér leitartillögur.

 

5.  Upplýsingar sem við söfnum frá öðrum aðilum

Upplýsingaflokkur Notkunarlýsing
Upplýsingar úr opinberum og sögulegum skrám Ancestry safnar gögnum frá ýmsum aðilum, vanalega úr opinberum heimildum, þ.m.t. dagblöðum, ásamt fæðingar-, giftingar- og dánarvottorð og þjóðskrám sem geta innihaldið persónuupplýsingar sem tengjast þér. Opinberar og sögulegar skrár geta einnig innihaldið persónuupplýsingar sem tengjast notendum sem ekki eru Ancestry. Þessar skrár eru vanalega gerðar aðgengilegar notendum sem hluti af Ancestry áskriftarþjónustunni.
Upplýsingar frá þriðju aðilum

Við fáum einnig upplýsingar um þig frá þriðju aðilum. Til dæmis bætum við stundum við gögnin sem við söfnum með upplýsingum sem fengnar eru samkvæmt leyfi frá þriðju aðilum til að sérsníða þjónustuna og það sem við bjóðum þér upp á.

Ef þú kaupir gjafaáskrift eða AncestryDNA-prófunarbúnað sem gjöf munum við safna persónuupplýsingum, svo sem nafni viðtakanda, sendingarheimilisfang, netfang og þeim greiðsluupplýsingum sem nauðsynlegar eru til að ljúka við gjafakaupin og láta viðtakanda vita.

 

6.  Hvernig notar Ancestry persónuupplýsingarnar þínar?

Upplýsingaflokkur Notkunarlýsing
Persónuupplýsingar almennt Við notum persónuupplýsingar þínar til að veita, sérsníða, bæta, uppfæra og bæta við þjónustuleiðir okkar. Þetta felur í sér að:
  • staðfesta aðgang þinn að Þjónustunni og bæta upplýsingaöryggi Ancestry;
  • vinna úr greiðslum þínum fyrir áskriftir, AncestryDNA þjónustu, ásamt öðrum vörum og notendamöguleikum;
  • byggja upp nýja þjónustu og bæta núverandi þjónustu;
  • hjálpa þér að búa til og veita þér innsýn í ættartré þín byggt á gögnum í gagnagrunnum Ancestry;
  • gefa út kannanir og spurningalistar til notkunar í þjónustunni, auk þess að auðvelda vöruþróun og rannsóknarframtaksverkefni;
  • framkvæma vísindalegar, tölfræðilegar og sögulegar rannsóknir;
  • greina og verjast villum, svikum eða annarri glæpsamlegri eða skaðlegri starfsemi; og
  • Framfylgja skilmálum okkar.
Samskipti Við notum persónuupplýsingar þínar til að eiga samskipti við þig um þjónustu okkar, svo sem þegar við:
  • svörum fyrirspurnir sem þú sendir til þjónustu okkar fyrir meðlimi;
  • tilkynnum um mögulega erfðafræðilega ættingja sem auðkenndir eru í gegnum DNA-pörun eða í gegnum fjölskyldusöguþjónustu okkar (til dæmis „Ancestry Hints®“ um hugsanlega ættfeður í gagnagrunninum okkar eða uppfærslur á AncestryDNA-prófunarniðurstöðum þínum (t.d. þjóðernismat eða erfðafræðileg samfélög;
  • látum þig vita af skrám eða „vísbendinum“ í gagnagrunninum sem varða fólk í ættartrénu þínu eða af aðilum sem þú gætir verið skyld(ur);
  • upplýsum þig um breytingar á þjónustunni eða nýja þjónustu;
  • biðjum þig um að taka þátt í Ancestry-fjölmiðlaefni, auglýsingum, framkvæmd neytendavitundarrannsókna eða að greina frá upplifun þinni sem hluta af kynningarstarfi; og
  • veita þér upplýsingar eða biðja um að þú bregðist við tækni-, öryggis- og eða öðrum rekstrarvandamálum.
Markaðssetja vörur og tilboð frá okkur eða viðskiptafélögum okkar

Við notum ákveðnar persónuupplýsingar (til dæmis lýðfræðilegar upplýsingar sem eru fáanlegar eru frá þriðju aðilum eða frá hlutum af Ancestry (prófíl, ættartrjám, o.s.frv.)) til að markaðssetja vörur og tilboð frá okkur eða viðskiptafélögum okkar. Þessi markaðssetning felur í sér auglýsingar sem byggðar eru á áhugamálum þínum.

Ancestry deilir ekki erfðafræðilegum upplýsingum þínum með markaðsaðilum þriðja aðila, tryggingafélögum eða vinnuveitendum, og við munum ekki nota erfðafræðilegar upplýsingar þínar við markaðssetningu eða persónusniðnar auglýsinga án þess að aukalega fá afdráttarlaust samþykki þitt.

Fyrir hvers kyns markaðssetningu sem byggir á samþykki þínu sem fengið er í gegnum tölvupóst eða SMS, þú getur stjórnað markaðssetningum til þín með afskráningartengilinn í hvaða markaðsefni sem þú færð með því að breyta reikningsstillingum eða með því að fylgja leiðbeiningunum í þeim markaðssamskiptum sem þú færð. Stýringar fyrir vörumerki tengdum Ancestry eru tiltækar í stillingum viðkomandi vörumerkja og eru skráðar hér. Fyrir tilteknar auglýsingar á verkvöngum þriðju aðila, treystum við á okkar eigin lögmæta hagsmuni sem lagalegan grundvöll (sjá kafla 7) og þú ættir að stjórna markaðssetningarstillingum þínum beint í þeim kerfum.

Erfðafræðilegar upplýsingar Ancestry notar erfðafræðilegar upplýsingar þínar með eftirfarandi markmið að leiðarljósi:
  • Að veita þér niðurstöður varðandi þjóðerni, DNA samsvörun (t.d. nánir fjölskyldumeðlimir, stórfjölskyldumeðlimir eða fjarskyldir ættingjar) úr gagnagrunni okkar og öðrum upplýsingum til að hjálpa þér og öðrum notendum að læra meira um hvert annað, hugsanlega fjölskyldumeðlimi, sem og erfðafræðilega ættingja og fjölskylduhópa;
  • að tengja þig við og hjálpa þér að læra um erfðafræðilega ættingja þína í gagnagrunninum okkar í gegnum eiginleika svo sem DNA-pörun eða aðra vörueiginleika;
  • að veita þér í gegnum gáttina okkar frekari innsýn inn í það sem þitt DNA getur sagt þér um eigin eiginleika og vellíðan;
  • að veita þér viðeigandi niðurstöður til að aðstoða þig við að uppgötva sameiginlega forfeður og aðrar upplýsingar um fjölskyldusögu þína, auk þess að hjálpa þér byggja upp fjölskyldutréð og að tengjast vinum og fjölskyldumeðlimum;
  • að rannsaka samanteknar erfðafræðilegar upplýsingar til að afla betri skilnings á þýði og heilsufari, vellíðan, öldrun og líkamsástandi sem tengja má við þjóðerni;
  • að framkvæma vísindalegar, tölfræðilegar og sögulegar rannsóknir; og
  • að bæta eiginleika og virkni núverandi DNA-tengdra vara okkar, auka upplifun viðskiptavina í gegnum alla Ancestry-þjónustu, bæta þá ferla og tækni sem við notumst við á rannsóknarstofum okkar og þróa nýjar vörur og þjónustu.

 

7.  Hvaða upplýsingum deilum við, hvenær deilum við þeim og hverjir eru viðtakendurnir?

Ancestry deilir ekki einstökum persónuupplýsingum þínum (þ.m.t. erfðafræðilegum upplýsingum) með þriðju aðilum nema eins og lýst er í þessari persónuverndaryfirlýsingu eða með frekara samþykki þínu. Við deilum ekki upplýsingum þínum með löggæslustofnunum nema við neyðumst til þess. Við munum ekki deila erfðafræðilegum upplýsingum þínum með tryggingafélögum, vinnuveitendum eða þriðju aðilum án þess að fyrir liggi skýlaust samþykki þitt.

Upplýsingar um deilingu Ancestry á efni innan Bandaríkjanna er að finna hér.

Aðstæðurnar sem lýst er hér að neðan útskýra í hvaða aðstæðum við deilum upplýsingum þínum:

 
Þeir aðilar sem gætu fengið aðgang að upplýsingum þínum / aðstæður þar sem slík miðlun gæti átt sér stað Lýsing
Ancestry fyrirtæki

Það getur verið að við deilum upplýsingum þínum innan Ancestry fyrirtækjasamstæðunnar, þ.m.t. Ancestry.com Operations Inc og finna má lista yfir þau fyrirtæki hér („Ancestry fyrirtæki“) til að halda úti þjónustu okkar og bæta hana.

Við flytjum persónulegar og erfðafræðilegar upplýsingar þínar á milli fyrirtækis Ancestry á Írlandi og fyrirtækja Ancestry í Bandaríkjunum. Fyrir nánari upplýsingar um þetta, sjá kafla 12 hér að neðan.

Aðrir notendur eða aðrir sem þú getur kosið að deila með

Sem hluti af notkun þinni á þjónustunni hefur þú möguleika á að bæta við eða deila upplýsingum með öllum notendum hennar eða með því að deila eiginleikum með ákveðnum Ancestry notendum og notendum sem ekki eru hluti af Ancestry. Þú getur deilt aukalegum upplýsingum í ákveðnni þjónustu, til dæmis AncestryDNA (sjá hér að neðan).

Upplýsingar á opinberum prófíl þínum eru aðgengilegar öðrum notendum, sem og opinberar upplýsingar um ættartré. Í grunninn eru prófílar lifandi einstaklinga í trénu þínu aðeins sýnilegir þér og öðrum sem þú velur að deila trénu með sem „ritsjórnandi“ eða þeim sem þú heimilar að sjá lifandi einstaklinga í trénu þínu. Aðrar upplýsingar um lifandi fólk geta verið sýnilegar ef þær eru teknar með í opinberu efnissafni, eða ef þú ákveður að birta upplýsingarnar utan trés þíns.

Þú getur deilt virkni þinni í samræmi við samskipti þín við skrár Ancestry og efni annars notanda t.d. ef þú bætir upplýsingum við fjölskyldutré annars, eða bætir við athugasemd við skrá eða efni annars aðila. Ef valmöguleiki fyrir nýlega skoðendur er á fyrir reikninginn þinn, getum við sýnt eigendum ættartrjáa að þú hefir skoðað þeirra tré. Ef þú velur að skoða og gera DNA paranir þínar sýnilegar, þá geta DNA pörunaraðilar þínir séð ákveðnar upplýsingar, svo sem notandanafn þitt, hvernig þeir gætu tengst þér, hvort þú hafir tengt ættartré við þitt DNA og annað hvort öllum eða bara tengdum svæðum og erfðafræðilegum samfélögum (að eigin vali). Þér gæti verið boðið upp á aðra möguleika til að tengjast ættingjum eða fræðast um fjölskyldutengsl.

Þú getur borið saman DNA upplýsingar s.s. þjóðernissvæði, erfðafræðileg samfélög og einkenni við DNA niðurstöður þínar.

Ef þú deilir upplýsingum um fjölskyldusögu þína eða DNA-upplifun utan þjónustunnar, gerir þú það á eigin ábyrgð.

Þjónustuveitendur

Við vinnum með öðrum fyrirtækjum við að veita og markaðssetja þjónustuna. Fyrir vikið munu þessi fyrirtæki hafa aðgang að eða búa yfir hluta af upplýsingum þínum, þ.m.t. af hluta persónuupplýsinga þinna í kerfum sínum. Þessi fyrirtæki eru háð samningsbundnum skyldum um persónuvernd, gagnaöryggi og trúnað í samræmi við gildandi lög. Þessi fyrirtæki og persónuupplýsingarnar sem þau hafa aðgang að eru meðal annars:

  • Rannsóknarfélagar (svo sem lífsýni þín);
  • Flutningsþjónustuaðilar DNA-prófunarbúnaðar (svo sem nafn, heimilisfang og símanúmer);
  • Greiðslumiðlun (svo sem greiðsluupplýsingar);
  • Innviðaveitendur skýjaþjónustu (vef- og farsímaþjónusta Ancestry eru skýjabundin þjónusta; öll gögn þín eru hjá skýjaþjónustuveitendum okkar);
  • Geymslubankar fyrir lífsýni (svo sem lífsýni og kóði DNA-prófunarbúnaðarins);
  • söluaðilar sem aðstoða okkur við markaðsgreiningu og neytendarannsóknir, forvarnir gegn svikum og öryggismál (svo sem netfang);
  • veitendur samskiptagrunnkerfa (svo sem nafn og netfang); og
  • söluaðilar sem gera okkur kleift að bjóða upp á ákveðnar aðgerðir í þjónustu okkar fyrir meðlimi, eins og símaþjónustu eða tól til að framkvæma kannanir (svo sem reikningsupplýsingar eða nafn eða netfang).
Samstarfsaðilar í greiningum og auglýsingastarfi Við vinnum með þriðja aðila samstarfsaðilum að greiningarmálum og auglýsingum. Með því að safna og deila tilteknum upplýsingum er auðveldara fyrir okkur að persónusníða auglýsingar betur svo þær passi við áhugasvið þín. Þetta hjálpar okkur einnig að mæla árangur auglýsingaherferða og er notað til að veita þér auglýsingar sem eiga betur við þig.
Samstarfsaðilar á sviði rannsókna og gögn sem hafa verið brengluð Við deilum brengluðum erfðafræðilegum upplýsingum þínum eingöngu með rannsóknarsamstarfsaðilum þegar þú hefur veitt okkur skýlaust samþykki þitt til að gera slíkt í gegnum upplýst samþykki fyrir rannsóknum. Ef þú hefur ekki veitt upplýst samþykki fyrir þátttöku í rannsóknum, verða gögn þín ekki með í gögnum sem verða gerð aðgengileg utanaðkomandi rannsóknaraðilum. Allar slíkar erfðafræðilegir upplýsingar og svipfarsupplýsingar sem við deilum með þriðju aðilum í rannsóknarskyni eru brenglaðar í samærmi við hluta 46 (í upphafi kafla 46.101) í bálki 45 í Lög um alríkisreglur (e. Code of Federal Regulations).

Rannsóknarsamstarfsaðilar eru m.a. félög sem eru rekin í hagnaðarskyni og félög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, sem stunda eða stuðla að vísindarannsóknum, þróun meðferðarúrræða, lækningatækja eða tengt efni til að meðhöndla, greina eða spá fyrir um heilsufarsástand. Í sumum tilfellum getur verið að rannsóknarsamstarfsaðili eða Ancestry hafi fjárhagslega hagsmuni af rannsóknarfyrirkomulaginu. Lista yfir rannsóknarsamstarfsaðila okkar er að finna hér.

Löggæslustofnanir

Ancestry veitir ekki af fúsum og frjálsum vilja gögn af neinu tagi til stjórnvalda eða dómstóla eða til lögregluyfirvalda. Til að veita notendum okkar mestu mögulegu vernd samkvæmt lögum, krefjumst við þess að allar ríkisstofnanir sem sækjast eftir aðgangi að gögnum viðskiptavina Ancestry fylgi gildum lagalegum ferlum. Við heimilum ekki löggæslustofnunum að nota þjónustuna til að rannsaka glæpi eða til að bera kennsl á líkamsleifar.

Ef við neyðumst til að birta löggæslustofnunum persónuupplýsingar þínar, munum við gera okkar besta til að veita þér fyrirvara, nema okkur sé óheimilt samkvæmt lögum að gera það. Ancestry gefur út gagnsæisskýrslu þar sem við skráum fjölda gildra beiðna frá löggæslustofnunum um notendagögn fyrir öll vefsvæðin okkar.

Önnur laga- og regluferli Það kann að vera að við deilum persónuupplýsingum þínum ef við teljum að það beri eðlileg nauðsyn til þess til að:
  • uppfylla lögmætar lagalegar kröfur (t.d. leitarheimild, vitnastefnur);
  • framfylgja eða beita skilmálum okkar;
  • standa vörð um öryggi eða heilleika þjónustunnar; eða
  • standa vörð um réttindi, eignir eða öryggi Ancestry, starfsmanna okkar eða notenda.
Ef Ancestry er keypt Ef Ancestry eða fyrirtæki þess eru keypt eða yfirtekið (þ.m.t. í tengslum við gjaldþrot eða svipaða málsmeðferð), kann að vera að deilum persónuupplýsingum þínum með yfirtöku- eða viðtökuaðilanum. Loforðin í þessari persónuverndaryfirlýsingu munu halda áfram að gilda um persónuupplýsingar þínar sem eru fluttar til nýja aðilans.
Samantekin gögn Ancestry birtir notendaupplýsingar á samanteknu, brengluðu sniði sem hluta af þjónustunni eða markaðssetningu okkar, eða í vísindaritum sem gefin eru út af okkur eða rannsóknarsamstarfsaðilum okkar. Til dæmis gætum við greint frá hlutfalli innflytjenda í ríki sem eru frá ákveðnu landsvæði eða landi. Slík birting mun aldrei innihalda persónuupplýsingar og við munum ekki auðkenna gögnin aftur.

 

8.  Réttindi þín og val í tengslum við persónuupplýsingar þínar

Allir notendur (eins og þeir eru skilgreindir í skilmálum okkar) mega nota verkfæri okkar á netinu til að 1) biðja um skýrslu um hvaða persónuupplýsingar þeir hafa veitt okkur, 2) sækja afrit af DNA-gögnum sínum eða sækja afrit af ættartré þeirra og 3) eyða ættartré þeirra, niðurstöðum úr AncestryDNA-prófi eða reikningi.

Þess að auki geta ákveðin persónuverndar lög, svo sem EUEEA, GDPR, breska GDPR og brasilíska LGPD, veitt fólki með ákveðin réttindi varðandi persónuupplýsingar þess. Til dæmis:

Réttur til að fá aðgangað/fá að vita.  Þú gætir átt rétt á að biðja um aðgang að persónuupplýsingunum þínum og fá afrit af tilteknum upplýsingum, þ.m.t. hvaða flokkum af persónuupplýsinga við söfnum og birtum. Til að biðja um afrit skaltu fylgja þessum þrepaskiptu leiðbeiningum. Ef þú vilt fá afrit af DNA-gögnum þínum skaltu fylgja þessum þrepaskiptu leiðbeiningum. Ef þú vilt fá afrit af fjölskyldutrjánum þínum skaltu fylgja þessum þrepaskiptu leiðbeiningum.

Réttur til lagfæringa/leiðréttingar. Þú gætir átt rétt á að biðja um að við leiðréttum eða lagfærum ónákvæmar persónuupplýsingar um þig.

Réttur til þurrka út/eyða. Þú átt rétt á, í vissum tilvikum, að biðja um að við takmörkun (hættum vinnslu sem er í gangi) eða eyðum persónuupplýsingunum þínum, að því tilskildu að gildar ástæður séu fyrir því og með fyrirvara um gildandi lög. Sjá kafla 10 til að fá upplýsingar um hvernig þú getur eytt persónuupplýsingum þínum.

Réttur til að mótmæla. Þú hefur rétt til að mótmæla vinnslu okkar á upplýsingum sem er framkvæmd vegna lögmætra hagsmuna okkar þegar slík vinnsla hefur áhrif á réttindi þín og einstaklingsfrelsi. Einnig getur þú, þegar þú samþykkir vinnslu persónuupplýsinga þinna í ákveðnum tilgangi, ákveðið að afturkalla samþykki þitt á hvaða tíma sem er án þess að hafa áhrif á lögmæti vinnslu sem átti sér stað áður en samþykkir var aftur kallað. Við munum hætta að vinna gögnin þín í þeim tilgangi.

Réttur til takmörkunar. Þú átt rétt a að biðja um takmörkun vinnslu okkar á persónuupplýsingunum þínum, t.d. þar sem þú telur að vinnslan sé byggð á ónákvæmum gögnum eða þau ekki unnin á löglegan hátt.

Réttur til gagnaflutnings. Þú gætir átt rétt á að fá ákveðnar persónuupplýsingar þínar á sniði sem hægt er að senda til annars ábyrgðaraðila.

Réttur til að kvarta. Þú átt rétt á að kvarta til írsku gangaverndarnefndarinnar (e. IrishData Protection Commission, meðhöndlun kvartana, rannsóknir og framfylgni fyrir einstaklinga | Gagnaverndarfulltrúi) eða annað viðeigandi yfirval í búsetulandi þínu.


Þú getur nýtt þér þessi réttindi með því að nota verkfærin sem lýst er hér að neðan eða með því að hafa samband við Ancestry. Ítarupplýsingar og valkostir til að fá aðgang að þessum upplýsingum er gefið upp í kafla 15.

Gerð Valkostir
Ancestry Þú getur nálgast og uppfært persónuupplýsingarnar (svo sem netfangið þitt, notandanafn, prófílupplýsingar o.s.frv.) sem þú gefur Ancestry hvenær sem er í eftirfarandi hlutum persónuverndarstillinganna: Til að læra hvernig á að breyta persónuverndarstillingum fyrir ættartré sem þú hefur búið til á Ancestry, getur þú heimsótt ættartrésstillingar þínar eða smellt hér.
Tengd vörumerki Ancestry leitast við að gera það einfalt fyrir þig að gæta að persónuvernd í gegnum þjónustuna okkar. Þú getur breytt persónuverndarstillingum þínum fyrir tengd vörumerki okkar hér.
Farsímaforrit Þú getur líka haft umsjón með upplýsingunum þínum með því að nota stillingarnar sem er að finna í farsímaforritunum okkar, svo sem Ancestry, Find a Grave, forritum.
Auglýsingar Við notum vafrakökur og svipaða rakningartækni og samþættingu við markaðs- og auglýsingaefni þriðja aðila til að safna gögnum um áhugamál þín eða hegðun til að birta þér miðaðar auglýsingar. Þú getur breytt stillingunum þínum eins og lýst er í vafrakökurstefnu okkar. Fyrir upplýsingar um „Do Not Track“ („Ekki rekja“), skaltu kynna þér vafrakökurstefnu okkar.
Sækja upplýsingar úr ættartré Ancestry gerir þér kleift að hlaða niður ættartrésupplýsingum þínum á stöðluðu GEDCOM ættartrésskráarsniði í ættartrésstillingunum þínum. Lærðu hvernig á að gera það hér.
DNA niðurhal Þú getur hlaðið niður skrá með DNA-gögnum þínum. Ef þú sækir DNA-gögnin þín þá gerirðu það á eigin ábyrgð. Til að fræðast um hvað er innifalið í niðurhali á DNA-gögnum, sjá hér.

 

9.  Hverjar eru gagnageymdarreglur okkar?

Ancestry-þjónustan byggir í grundvallaratriðum á þeirri hugmynd að persónulegt ferðalag einstaklinga í átt að sjálfuppgötvunum sé ekki stakur viðburður heldur nokkuð sem teygir sig áfram yfir lengra tímabil - mögulega margar ævir. Að auki, og sérstaklega með tilliti til áskrifenda okkar og DNA-viðskiptavina sem greiða gjöld eða kaupa áskrift, veita áframhaldandi endurbætur á safni okkar af sögulegum skrám og DNA-eiginleikum notendum okkar ávinning og innsýn með tímanum. Þar af leiðandi endurspegla gagnageymdaraðferðir okkar þessa viðvarandi stefnu með því að varðveita notendareikninga í kerfinu okkar þar til notendur okkar láta okkur vita að þeir vilji eyða gögnum sínum eða loka reikningum sínum.

Upplýsingaflokkur Varðveislutímabil
Reikningur og prófíll Ancestry mun varðveita persónuupplýsingarnar sem þú veitir okkur þegar þú stofnar reikninginn og prófílinn þinn þar til þú eyðir reikningnum þínum.
Ættartré Vegna þess að vægi ættartrjáa teygir sig yfir fjölda kynslóða, mun Ancestry varðveita ættartrésgögnin þín til að geta veitt þér stöðugan aðgang, uppfærða eiginleika og getuna á að bæta ættartréð þitt. Ættartrésgögnin þín eru geymd þar til þú eyðir ættartrénu þínu eða reikningnum þínum.
DNA

Ancestry geymir DNA-gögnin þín til að bjóða þér upp á eiginleikana og virknina sem þú keyptir (eða fékkst gefins), þ.m.t. eiginleikar sem stöðugt er verið að uppfæra, sífellt nákvæmara þjóðernismat og endurbætt svæði og samfélög, auk annarra nýrra eiginleika sem byggjast á DNA-gögnum þínum. DNA-gögnin þín eru geymd þar til þú eyðir niðurstöðum úr AncestryDNA-prófunum þínum eða reikningnum þínum.

Ef þú varst viðskiptavinur AncestryHealth, þá þurfa samstarfsaðilar okkar hjá AncestryHealth rannsóknarstofunni að varðveita DNA-gögnin þín og niðurstöður prófana í að minnsta kosti sjö ár, eða eins og krafist er samkvæmt lögum viðkomandi ríkis og í samræmi við „Clinical Laboratory Improvements Act“ (CLIA) og þær viðmiðunarreglur sem eiga við um rannsóknarstofur sem vottaðar eru af College of American Pathologists (CAP).

Tengd vörumerki Sum af tengdum vörumerkjum okkar (AncestryDNA, Fold3, Forces War Records, Newspapers.com™, Archives, We Remember og Find a Grave) eru með eigin reikningsinnskráningu og munu varðveita persónuupplýsingarnar sem þú veitir þegar þú býrð til reikninginn og prófílinn þinn eftir þörfum, til að geta boðið þér upp á stöðuga og uppfærða þjónustu þar til þú biður okkur um að eyða upplýsingunum.
Notkunarupplýsingar Við varðveitum notkunarupplýsingar (t.d. heimsóknir á vefsvæði) á afpersónugerðu eða samanteknu sniði. Þegar upplýsingarnar hafa verið teknar saman hætta þessar upplýsingar að vera persónulegar og verða ekki háðar beiðnum notenda um eyðingu.

 

10.  Hvernig get ég eytt persónuupplýsingum mínum?

Þú getur eytt persónuupplýsingunum þínum úr Ancestry hvenær sem er.

Upplýsingaflokkur Hvernig á að eyða
Persónuupplýsingar

Þú getur eytt persónuupplýsingunum þínum úr Ancestry með því að fylgja þessum leiðbeiningum.

Ef þú hefur deilt upplýsingum með öðrum notendum (t.d. með því að gera ættartrén þín opinber eða með því að deila DNA-niðurstöðum þínum beint með öðrum notendum), mun Ancestry ekki geta fjarlægt nein afrit af upplýsingum sem aðrir notendur kunna að hafa varðveitt, sem aðeins er hægt að fjarlægja með því að hafa samband við þá notandendur og biðja þá um að eyða upplýsingaafritunum.

Því er mikilvægt að vísa beiðnum um að fjarlægja upplýsingar úr tengdum skjalaskrám til þess skjalavörsluaðila sem ábyrgur er fyrir þeim.

Við munum íhuga beiðnir um að fjarlægja persónuupplýsingar úr leitarbærum yfirlitsskrám yfir þær skrár sem við geymum í hverju tilviki fyrir sig og í samræmi við lög.

Til að fá upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem Ancestry vinnur úr og tengjast notendum sem ekki eru hluti af Ancestry skaltu smella hér.

Erfðafræðilegar

Ef þú biður um að Ancestry eyði DNA-gögnunum þínum munum við eyða öllum erfðafræðilegum upplýsingum, þ.m.t. eyða öllum afleiddum erfðafræðilegum upplýsingum (þjóðernismat, erfðafræðilegar samsvaranir um skyldleika, o.s.frv.) úr framleiðslu-, þróunar-, greiningar- og rannsóknarkerfum okkar innan 30 daga.

Til að biðja um að lífsýnum þínum verði eytt verður þú að hafa samband við meðlimaþjónustuna. Ef þú hefur samþykkt upplýst samþykki fyrir rannsóknum hjá okkur, þá munum við ekki geta fjarlægt erfðafræðilegu upplýsingarnar þínar úr yfirstandandi eða loknum rannsóknarverkefnum, en við munum ekki nota þær í neinum nýjum rannsóknarverkefnum.

Almennar Það gæti liðið smá tími frá því að við eyðum persónuupplýsingum þínum úr öryggisafritum og þar til þeim hefur verið eytt úr framleiðslu-, þróunar-, greiningar- og rannsóknarkerfum okkar. Samstarfsaðilar okkar á rannsóknarstofum kunna að varðveita upplýsingar sem þeir fá frá okkur til að hlíta lögum eða reglugerðum sem kunna að krefjast þess, s.s. „Clinical Laboratory Improvements Amendments“ (viðauki um endurbætur á klínískum rannsóknastofum) reglugerðarinnar sem lýtur eftirlits matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna. Ancestry gæti einnig varðveitt ákveðnar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að uppfylla lagalegar skyldur okkar (þ.m.t. beiðnir frá löggæslustofnunum), leysa ágreining, viðhalda öryggi, koma í veg fyrir svik og misnotkun, og til að uppfylla kröfur sem lúta að reglum um skattalöggjöf, greiðsluþjónustu, verðbréf og klíníska starfshætti.
Tengd vörumerki Til að eyða upplýsingum frá tengdum vörumerkjum okkar (Fold3, Forces War Records, Newspapers.com™, Archives, We Remember, og Find a Grave), geturðu alltaf haft samband við okkur hjá viðkomandi vörumerki og beðið um að persónuupplýsingum þínum verði eytt hjá viðkomandi þjónustu. Sumar þjónusturleiðir kunna einnig að vera með eyðublað á netinu sem nota má til að leggja inn beiðni, sem hægt er að nálgast í reikningsstillingavalmynd viðkomandi þjónustu og hægt er að skoða hér.

 

11.  Öryggismál

Ancestry viðheldur alhliða upplýsingaöryggisáætlun sem er hönnuð til að verja persónuupplýsingar viðskiptavina okkar í gegnum stjórnunarferla og tæknilegar og efnislegar verndarráðstafanir.

Sértækar öryggisráðstafanir byggjast á því hversu viðkvæmar persónuupplýsingarnar eru sem safnað er. Til staðar eru ráðstafanir til að verjast gegn óviðeigandi aðgangi, tapi, misnotkun eða breytingum á persónuupplýsingum (þ.m.t. erfðafræðilegum upplýsingum) sem eru í okkar varðveislu.

Öryggisteymi Ancestry fer reglulega yfir öryggis- og persónuverndarvenjur okkar og efla eftir þörfum til að tryggja heilleika kerfa okkar og persónuupplýsinga þinna.

Við notumst við öruggan netþjónahugbúnað til að dulkóða persónuupplýsingar (þ.m.t. erfðafræðilegar upplýsingar) og við erum eingöngu í samstarfi við öryggisfyrirtæki sem uppfylla og skuldbinda sig til að uppfylla öryggisstaðla okkar. Þó að við getum ekki ábyrgst að tap, misnotkun eða breytingar á gögnum eigi sér ekki stað, þá reynum við af fremsta megni að fyrirbyggja þetta.

Það er einnig mikilvægt fyrir þig að verjast óviðkomandi aðgangi að persónuupplýsingum þínum með því nota örugg aðgangsorð og koma í veg fyrir að óviðkomandi aðilar noti tölvuna þína eða tæki.

 

12.  Alþjóðlegur gagnaflutningur

Við erum alþjóðlegt fyrirtæki og gætum flutt persónuupplýsingar þínar til annarra landa en þíns eigin lands, þ.m.t. til Bandaríkjanna, Írlands, Bretlands og Frakklands. Það getur verið að lönd sem eru utan EES, Sviss eða Bretlands geti ekki boðið upp á sama stig gagnaverndar og þú færð í heimalandi þínu. Þegar við flytjum persónuupplýsingar og erfðaupplýsingar þínar á milli fyrirtækis Ancestry í Írlandi og bandarískra fyrirtækja Ancestry til vinnslu í Bandaríkjunum, treystum við á staðlað flutningsfyrirkomulag eins og stöðluð samningsákvæði.

 

13.  Breytingar á þessari persónuverndaryfirlýsingu

Við getum breytt þessari persónuverndaryfirlýsingu hvenær sem er, en við munum veita skýran fyrirvara um allar efnislegar breytingar á þessari persónuverndaryfirlýsingu með því að birta tilkynningu í gegnum þjónustuna okkar, á vefsíðum okkar eða senda þér tölvupóst til að gefa þér tækifæri til að fara yfir breytingarnar og velja hvort þú viljir halda áfram að nota þjónustuna.

Við munum einnig tilkynna þér um óverulegar breytingar á þessari persónuverndaryfirlýsingu frá gildistökudegi þeirra með því að senda tilkynningu í gegnum þjónustuna, birta á vefsíðum okkar eða senda þér tölvupóst.

Ef þú ert andsnúin(n) einhverjum breytingum geturðu eytt reikningnum þínum eins og lýst er í kafla 10.

 

14.  Lagalegur grundvöllur samkvæmt Almennu persónuverndarreglugerð ESB varðandi vinnslu persónuupplýsinga íbúa ESB

Samkvæmt lögum ESB/EES og Bretlands er okkur skylt að tilgreina í hvaða tilgangi við vinnum persónuupplýsingar þínar og lagagrundvöllinn sem við byggjum slíka vinnslu á. Ancestry treystir á fjölda lagagrunna til að safna og vinna úr persónuupplýsingum þínum og erfðafræðilegum upplýsingum. Þú getur skoðað upplýsingar um lagagrunna okkar hér.

 

15.  Auðkenni og sambandsupplýsingar ábyrgðaraðila gagna

Viðskiptavinir í Bandaríkjunum

Ef þú býrð í Bandaríkjunum eru Ancestry.com Operations, L.P., Ancestry.com Operations Inc., og Ancestry.com DNA, LLC, ábyrg fyrir notkun gagna þinna og fyrir að svara öllum beiðnum sem tengjast persónuupplýsingum þínum.

 

  Tölvupóstur Póstfang
Fyrir notendur í Bandaríkjunum [email protected] Ancestry.com Operations, L.P.
Attn: Privacy Office
153 Townsend Street, Suite 800
San Francisco, CA 94107
US State Privacy Requests [email protected] Á ekki við
California Authorized Agent Support [email protected] Á ekki við

 

Viðskiptavinir utan Bandaríkjanna

Ef þú ert búsett(ur) utan Bandaríkjanna er Ancestry Ireland Unlimited Company ábyrgðaraðili gagnanna þinna.

Notendur utan Bandaríkjanna geta haft samband við írsku gagnaverndarnefndina eða gagnaverndaryfirvöld á staðnum.

 

  Tölvupóstur Póstfang
Fyrir notendur sem eru staðsettir utan Bandaríkjanna [email protected] Ancestry Ireland Unlimited Company
Attn: Privacy Office
52-55 Sir John Rogerson’s Quay
Dublin D02 NA07
Ireland

 

Fyrir viðskiptavini Ancestry. Fyrir upplýsingar um hvernig á að hafa samband við okkur getur þú ýtt hér, eða sent spurningar í gegnum spjallið.

Beiðnir frá lögregluyfirvöld. Lögregluyfirvöld skulu að fylgja leiðarvísi Ancestry's fyrir lögregluyfirvöld.

 

16.  Viðbótarpersónuverndaryfirlýsing fyrir íbúa Bandaríkjanna

Ancestry veitir þessa viðbótarverndaryfirlýsingu fyrir íbúa Bandaríkjanna („Bandaríkjayfirlýsing"), sem gildir fyrir íbúa Kaliforníu, Colorado, Connecticut, Utah, Virginíu, og aðra íbúa Bandaríkjanna, til viðbótar við persónuverndaryfirlýsingu okkar, til að veita upplýsingar um hvernig þú getur nýtt þér réttindi þín samkvæmt California Consumer Privacy Act of 2018 lögunum („CCPA”), Colorado Privacy Act lögunum, („CPA”) lögunum, Connecticut Data Privacy Act lögunum („CTDPA”), og Virginia Consumer Data Protection Act lögunum („VCDPA”). Þessi Bandaríkjayfirlýsing nær yfir allar Ancestry vefsíður, þjónustu og farsímaforrit sem tengjast þessari Bandaríkjayfirlýsingu, þ.m.t.: Ancestry, AncestryDNA, Fold3, Forces War Records, Newspapers.com™, Archives, We Remember og Find a Grave (sem í heildartextanum er kallað „Ancestry“ „við”, „okkur“ eða „okkar“). Það á við um persónuupplýsingarnar (skilgreindar hér að ofan) sem við söfnum vegna notkunar þinnar á þjónustunni okkar og á við aðrar leiðir sem þú notar til að eiga samskipti við okkur.

16.1  Flokkar persónuupplýsinga

Ancestry safnar, og hefur safnað á 12 mánuðum fyrir gildistökudag þessarar Bandaríkjayfirlýsingar, eftirfarandi flokkum persónuupplýsinga:

  • Auðkennum, svo sem nafn, notendanafn, póstfang, einkvæmt persónuauðkenni, netauðkenni, IP-tölu, auðkenni farsímans þíns, netfang, reikningsheiti, ökuskírteini.
  • Flokkar persónuupplýsinga sem lýst er í undirflokki (e) í kafla 1798.80 sem falla ekki undir núverandi flokk (líkamleg einkenni eða lýsingar).
  • Einkenni verndaðra flokka samkvæmt gildandi lögum fylkis eða alríkislögum, svo sem kyni við fæðingu og fæðingardagur. Þetta felur einnig í sér efni þitt (eins og það er skilgreint í skilmálum okkar) sem þú velur að birta okkur sem er talið vera lagalega verndaður flokkur samkvæmt lögum fylkis eða alríkislögum.
  • Viðskiptaupplýsingar, svo sem vörur eða þjónusta sem er keypt, öfluð eða íhuguð eða önnur innkaupa- eða neyslusaga eða tilhneigingar.
  • Upplýsingar um netnotkun, eins og vafrasögu þína, leitarferil og upplýsingar um samskipti þín við síður okkar og auglýsingar.
  • Landfræðileg staðsetningargögn, svo sem staðsetningu tækisins eða tölvunnar og hvers kyns lýsigögn sem tengjast stafrænum ljósmyndum sem hlaðið er upp á Find a Grave, þ.m.t. stað og stund þegar myndin var tekin.
  • Skynfræðileg gögn, eins og hljóð-, rafrænar og sjónrænar upplýsingar (t.d. hljóð- eða myndbandsupptökur sem þú hleður upp, upptökur af símtölum við þjónustu Ancestry fyrir meðlimi eða upplýsingar sem þú birtir okkur af fúsum og frjálsum vilja þegar þú tekur þátt í neytendavitundarrannsóknum með okkur).
  • Ályktanir dregnar út frá persónuupplýsingum, svo sem til að benda á fjölskyldutengsl og til að búa til neytendasnið fyrir rannsóknir, vöruþróun og markaðssetningu.
  • Viðkvæmar persónuupplýsingar svo sem ökuskírteini, innskráningarupplýsing fyrir reikning, upplýsingar um kynþátt eða þjóðerni eða erfðafræði uppýsingar sem veltur á því hvernig þú notar þjónustuna. Við birtum ekki viðkæmar persónuupplýsingar sem gefa til kynna sérkenni þín, aðrar en þær upplýsingar sem eru hluti af eðlilegri þjónustu Ancestry, svo sem þjóðernismat, einkenni og erfðafræðileg samfélög.

Sumum flokkum upplýsinga er aðeins safnað ef þú notar ákveðna þjónustu okkar.

16.2  Viðskiptatilgangur

Ancestry notar flokka persónuupplýsinga sem lýst er í kafla 16.1 í eftirfarandi viðskiptatilgangi:

  • Að útvega, sérsníða, bæta, uppfæra og auka þjónustu Ancestry;
  • Samskipti við þig um þjónustuna;
  • Hjálpa til við tryggja öryggi og heilstæðni þjónustunnar; og
  • Markaðssetning á nýjum vörum og tilboðum frá okkur eða viðskiptafélögum okkar út frá áhugasviðum þínum.

16.3  Uppsprettuflokkar persónuupplýsinga

Ancestry safnar, og hefur safnað á 12 mánuðum fyrir gildistökudag þessarar Bandaríkjayfirlýsingar, þeim flokkum persónuupplýsinga sem lýst er í kafla 16.1 úr eftirfarandi uppsprettuflokkum:

  • Þú, notandi/gestur okkar - þessi uppspretta persónuupplýsinga er háð notkun þinni á Þjónustunni, þ.m.t. þegar þú sendir þitt efni (eins og það er skilgreint í skilmálum okkar);
  • Fyrirtæki Ancestry (skilgreint í kafla 7);
  • Opinberar skrár;
  • Sögulegar skrár; og
  • þriðju aðilar.

16.4  Miðlun persónuupplýsinga í viðskiptalegum tilgangi

Ancestry birtir, og hefur birt á 12 mánuðum fyrir gildistökudag þessarar Bandaríkjayfirlýsingar, með eftirfarandi flokkum þriðju aðila samsvarandi flokkum persónuupplýsinga í viðskiptalegum tilgangi:

Flokkanir þriðju aðila  Flokkar persónuupplýsinga sem við birtum
Aðrir Ancestry-notendur (ef þú birtir persónuupplýsingar þínar á Ancestry
  • Auðkenni;
  • Flokkar persónuupplýsinga sem lýst er í kafla 1798.80 (e) í borgaralögum Kaliforníuríkis; og
  • Einkenni verndaðra flokka samkvæmt Bandaríkjayfirlýsingunni eða alríkislögum.
Ancestry fyrirtæki
  • Auðkenni;
  • Flokkar persónuupplýsinga sem lýst er í kafla 1798.80 (e) í borgaralögum Kaliforníuríkis;
  • Einkenni verndaðra flokka samkvæmt Bandaríkjayfirlýsingunni eða alríkislögum;
  • Viðskiptaupplýsingar;
  • Tölvulæsileg DNA-gögn (aðeins milli Ancestry og AncestryDNA);
  • Upplýsingar um netnotkun;
  • Staðsetningargögn;
  • Skynfræðileg gögn; og
  • Ályktanir.
Þjónustuveitendur
  • Auðkenni og flokkar persónuupplýsinga sem lýst er í kafla 1798.80(e) í borgaralögum Kaliforníu, svo sem netfang og einkvæm persónuauðkenni sem Ancestry myndar (kóði á glasi);
  • Lífsýni;
  • Einkenni verndaðra stétta samkvæmt gildandi lögum fylkja eða Bandaríkjastjórnar (sjálftilkynnt kyn við fæðingu, fæðingardagur) eru birt rannsóknarstofum sem starfa með okkur;
  • Viðskiptaupplýsingar;
  • Upplýsingar um netnotkun;
  • Staðsetningargögn;
  • Skynfræðileg gögn; og
  • Ályktanir.
Rannsóknarsamstarfsaðilar Sjá Upplýst samþykki fyrir rannsóknum til að fá upplýsingar um hverju er deilt með rannsóknarsamstarfsaðilum, sem felur í sér:
  • Auðkenni;
  • Flokkar persónuupplýsinga sem lýst er í kafla 1798.80 (e) í borgaralögum Kaliforníuríkis;
  • Einkenni verndaðra flokka samkvæmt Bandaríkjayfirlýsingunni eða alríkislögum;
  • Viðskiptaupplýsingar;
  • Tölvulæsileg DNA-gögn;
  • Upplýsingar um netnotkun;
  • Skynfræðileg gögn; og
  • Ályktanir.
Lögregla eða aðrar eftirlitsstofnanir Við birtum ekki upplýsingar þínar til löggæslustofnana eða annarra eftirlitsstofnana nema við neyðumst til þess. Við krefjumst þess að lögmætar lagalegar kröfur séu fyrir hendi eins og lýst er í kafla 7 áður en við afhendum löggæslustofnunum gögn. Fyrir upplýsingar um hvaða gögn hafa verið birt, sjá Gagnsæisskýrslu okkar sem kemur út hálfsárslega.

16.5  Birting og auglýsingastillingar

Ancestry deilir og hefur deilt á 12 mánuðum fyrir gildistökudag þessarar Bandaríkjayfirlýsingar, með eftirfarandi flokkum þriðju aðila samsvarandi flokkum persónuupplýsinga í fyrir sérsniðnar auglýsingar:

Flokkanir þriðju aðila  Flokkar persónuupplýsinga sem við birtum
Samstarfsaðilar fyrir markaðssetningu og auglýsingar
  • Auðkenni;
  • Viðskiptaupplýsingar;
  • Upplýsingar um netnotkun;
  • Ályktanir.

Við notum vafrakökur og svipaða rakningartækni til að birta þjónustuaðilum okkar og þriðju aðilum sem starfa með okkur upplýsingar af ýmsum ástæðum, þ.m.t. til að mæla, miða á og birta auglýsingar eins og nánar er lýst í þessari persónuverndaryfirlýsingu.

Samkvæmt lögum í sumum lögsögum í Bandaríkjunum hefur þú rétt á að skrá þig út úr því að persónuupplýsingum þínum sé deilt fyrir markmiðaðar auglýsingar. Þú getur lært meira um starfshætti okkar og eftirlit sem þér er boðið upp á til að afskrá þig úr slíkri miðlum með því að skoða vafrakökustefnu okkar. Til að breyta stillingum varðandi markmiðaðar auglýsingar, vinsamlegast farðu á Do Not Sell or Share my Personal Information/Opt Out of Targeted Advertising síðuna eða „Do Not Sell or Share My Personal Information“ slóðina neðst á síðunni. Ancestry selur ekki eða deilir persónuupplýsingum þínum í öðrum tilgangi.

Ákveðnir vafrar eða íbætur nota Global Privacy Control (GPC), sem þú getur fræðst um á https://globalprivacycontrol.org. Ef síða okkar nemur GPC merki frá tæki þínu, munum við túlka það sem merki um að þú afskráir þig úr sölu og dreifingu á persónuupplýsingum þínum og að þú skráir þig úr markmiðuðum auglýsingum. Ef þú skráir þig úr markmiðuðum auglýsingum í gegnum GPC eða stillingunni á Do Not Sell or Share my Personal Information/Opt Out of Targeted Advertising síðunni, kunnum við samt að senda þér auglýsingar sem eru ekki sérsniðnar að persónuupplýsingum þínum.

Þessar afskráningar takmarkast við vafra og tæki. Ef þú notar mörg tæki t.d. snjallsíma, fartölvu eða spjaldtölvu þegar þú notar Ancestry þjónustuna, þarftu að skilgreina samþykki þitt fyrir hvert tæki. Ef þú eyðir vafrakökum úr skyndiminni í vafra þínum mun „Do Not Sell or Share“ stillingin eyðast út og þú verður að endurstilla hana.

Ancestry deilir ekki eða selur erfðafræðilegar upplýsingar þínar með þriðju aðilum sem stunda markaðssetningu, tryggingafélögum eða vinnuveitendum, og við munum ekki nota erfðafræðilegar upplýsingar þínar við markaðssetningu eða persónusniðnar auglýsinga nema að fengnu afdráttarlausu samþykki þínu.

16.6  Nýting á réttindum þínum

16.6.1  Réttur til að vita. Þú hefur rétt á að biðja um að við opinberum hvaða persónuupplýsingum við söfnum, notum, birtum eða deilum. Þetta felur í sér rétt á að biðja um flokka persónuupplýsinga sem við höfum safnað um þig, uppsprettuflokka persónuupplýsinga, viðskiptalegan tilgang með söfnun, birtingu eða deilingu persónuupplýsinganna, flokka þriðju aðila sem við birtum eða deilum persónuupplýsingunum með og tiltekna hluta af persónuupplýsingum sem við höfum safnað um þig.

Ef þú ert að senda inn upplýsingabeiðni fyrir eigin hönd eru tvær leiðir til að leggja fram beiðnina: á netinu eða með tölvupósti.

Til að senda inn upplýsingabeiðni þína til Ancestry á netinu skaltu fylgja þessum þrepaskiptu leiðbeiningum um hvernig á að sækja reikningsgögnin þín. Þessi skýrsla mun ekki innihalda afrit af DNA-gögnum þínum eða ættartré. Ef þú vilt fá afrit af fjölskyldutrjánum þínum skaltu fylgja þessum þrepaskiptu leiðbeiningum. Ef þú vilt fá afrit af DNA-gögnunum þínum skaltu fylgja þessum þrepaskiptu leiðbeiningum. Athugaðu að ef þú sækir DNA-gögnin þín þá gerirðu það á eigin ábyrgð.

Til að senda inn beiðni þína um að fá upplýsingar um tengd vörumerki okkar (AncestryDNA, Fold3, Forces War Records, Newspapers.com™, Archives, We Remember og Find a Grave), geturðu alltaf haft samband við okkur hjá tengdu vörumerki og fyrir suma þjónustu gætu þeir einnig boðið upp á eyðublað fyrir beiðni á netinu sem hægt er að nálgast í valmynd reikningsstillinga viðkomandi þjónustu (samskiptaupplýsingar og tengill á netbeiðnaeyðublað, ef það er til staðar hér).

Til að senda upplýsingabeiðni þína með tölvupósti, sendu okkur tölvupóst á usprivacyrequests@ancestry.com. Okkur ber að staðfesta hver þú ert áður en þú færð afrit af gögnunum þínum. Við munum krefjast þess að þú framvísir sönnun um auðkenni og heimilisfangi þínu (t.d. gætir þú þurft að leggja fram afrit af ríkisskilríkjum þínum, sem verður eingöngu notað til að staðfesta auðkenni þitt og heimilisfang).

Ef þú ert „viðurkenndur umboðsaðili“ samkvæmt CCPA/CPRA og ert að senda inn upplýsingabeiðni fyrir hönd eins af notendum okkar, sjá  kafla 16.6.3.

16.6.2 Réttur til eyðingar. Þú hefur rétt á að biðja um að við eyðum persónuupplýsingum um þig.

Þú getur sent beiðni um eyðingu upplýsinga þinna annað hvort á netinu eða með tölvupósti. Að til að eyða persónuupplýsingunum þínum verður þú að eyða reikningnum þínum og að þegar beiðni um eyðingu reiknings er lokið er þetta ferli óafturkræft. Upplýsingunum þínum (þ.m.t. ættartré, skrár, myndir og DNA-gögn) verður eytt með varanlegum hætti.

Til að senda inn þína beiðni um eyðingu til Ancestry á netinu skaltu fylgja þessum þrepaskiptu leiðbeiningum um hvernig á að eyða reikningnum þínum. Til að senda inn beiðni þína um eyðingu frá vörumerkjum okkar (AncestryDNA, Fold3, Forces War Records, Newspapers.com™, Archives, We Remember og Find a Grave), geturðu alltaf haft samband við okkur hjá tengdu vörumerki og fyrir suma þjónustu gætu þeir einnig boðið upp á eyðublað fyrir beiðni á netinu sem hægt er að nálgast í valmynd reikningsstillinga viðkomandi þjónustu (samskiptaupplýsingar og tengill á netbeiðnaeyðublað, ef það er til staðar hér).

Til að senda beiðni þína um eyðingu með tölvupósti, sendu okkur tölvupóst á usprivacyrequests@ancestry.com. Okkur ber að staðfesta hver þú ert áður en við eyðum gögnunum þínum. Við munum krefjast þess að þú framvísir sönnun um auðkenni og heimilisfangi þínu (t.d. gætir þú þurft að leggja fram afrit af ríkisskilríkjum þínum, sem verður eingöngu notað til að staðfesta auðkenni þitt og heimilisfang).

Ef þú ert „viðurkenndur umboðsaðili“ samkvæmt CCPA/CPRA og ert að senda inn upplýsingabeiðni fyrir hönd eins af notendum okkar, sjá  kafla 16.6.3.

16.6.3  Viðurkenndir umboðsmenn.Í viðeigandi lögsögum geta bandarískir ríkisborgarar notað „viðurkennda umboðsmenn“ til að leggja inn beiðnir um að vita og beiðnir um eyðingu. Til að nota viðurkenndan umboðsmann skaltu senda okkur tölvupóst á [email protected]. Athugið að jafnvel þótt þú kjósir að nota viðurkenndan umboðsmann fyrir beiðni, þá gætir þú samt þurft að vinna beint með okkur til að útvega:

  • Undirritað leyfi frá neytanda sem gerir viðurkenndum umboðsaðila kleift að framkvæma hluti sem fulltrúi neytandans.
  • Staðfesting á auðkenni neytandans (sem neytandinn sendir beint til okkar). Við munum krefjast sönnunar á auðkenni og heimilisfangi (t.d. afrit af ríkisskilríkjum þínum, sem verður eingöngu notað til að staðfesta auðkenni þitt og heimilisfang).

Skýrslan verður afhent þér í gegnum Ancestry-reikning þinn. Skýrslan inniheldur hvorki afrit af DNA-gögnum neytandans né ættartré. Ef þú vilt hlaða niður ættartré sínu eða DNA-gögnum, sjá kafla  16.6.1.

16.6.4 Réttur til að áfrýja. Í samræmi við staðinn sem þú býrð á, ef beiðni þinni um að vita eða eyða gögnum þínum er neytað, getur þú haft rétt á að áfrýja. Þú getur gert það með að hafa samband við okkar í [email protected].

16.6.5 Réttur til að leiðrétta. Þú hefur rétt á að leiðrétta ónákvæm persónugögn sem við varðveitum um þig. Þú getur gert það með því að fara í stillingar reiknings eða að hafa samband við okkar í [email protected].

16.7  Sala. Til að skrá þig úr markmiðuðum auglýsingum sjá kafla 16.5.

16.8  Viðkvæmar persónuupplýsingar. Við vinnum viðkvæmar persónuupplýsingar sem við söfnum um þig aðeins til að veita þér þjónustuna, þ.m.t. til að:

  • Viðhalda gæðum og öryggi þjónustunnar;
  • Bæta þjónustuna;
  • Greina öryggisatvik;
  • Sporna gegn og lögsækja illgjarnar, villandi, sviksamlegar eða ólöglegar aðgerðir sem beinast að Ancestry; og
  • Viðhalda eða þjóna reikningum, veita viðskiptavinum þjónustu, vinna úr eða uppfylla pantanir og færslur, sannreyna upplýsingar um viðskiptavini, vinna úr greiðslum, veita greiningarþjónustu og veita geymslu.

Við kunnum einnig að vinna úr þessum viðkvæmu persónuupplýsingum eftir þörfum til að tryggja líkamlegt öryggi fólks og eins og krafist er í gildandi lögum.

16.9  Jafnræði. Við munum ekki mismuna þér fyrir að nýta þér réttindi þín samkvæmt gildandi reglugerðum Bandaríkjanna.

16.10  Shine the Light lög Kaliforníu. Einkaréttarlög Kaliforníu nr. 1798.83, einnig þekkt sem „Shine the Light“ lögin heimila notendum sem eru íbúar Kaliforníu að fara fram á og fá frá okkur lista yfir þær persónuupplýsingar (ef einhverjar) sem við birtum þriðju aðila sem hluta af beinni markaðssetningu þeirra á síðasta almanaksári og nöfn og heimilisföng þessara þriðju aðila. Einungis má senda inn beiðni einu sinni á ári og ekki er tekið gjald fyrir það. Samkvæmt kafla 1798.83 deilir Ancestry sem stendur engum persónuupplýsingum með þriðja aðila sem hluta af eigin beinni markaðssetningu.

16.11  Ársskýrsla. Smelltu hér til að sjá árlega skýrslu yfir beiðnir á alþjóðavísu sem snúa að rétti til að vita/aðgangur viðfangs og rétti til að eyða.

16.12  Hafa samband. Ef þú ert með spurningar um persónuverndarstefnu eða viðskipavenjur sem snúa að Bandaríkjunum vinsamlegast hafðu samband við okkur íusprivacyrequests@ancestry.com.

16.13 Úrræði.Ýmis alríkis-, ríkis- og staðbundin lög kunna að verja persónuupplýsingar þínar.

Íbúar Kaliforníu sem vilja koma á framfæri ásökun um bort á persónuverndarlögum Kaliforníu varðandi erfðafræðilegar upplýsingar (GIPA) geta sent kvörtun til ríkissaksóknara Kaliforníu eða lögmanns umdæmis síns. Íbúar í borgum með fleiri en 750.000 íbúa geta sent kvörtun til borgarlögmanns, og íbúar í borgum með borgarsaksóknara í fullu starfi geta sent kvörtun til saksóknara borgar sinnar. Ef þú vilt senda kvörtun til lögmanns umdæmis þíns, borgar þinnar eða borgarsaksóknara getur þú haft samband við skrifstofu þeirra á staðnum fyrir frekari upplýsingar. Íbúar Kaliforníu sem telja að persónuupplýsingar sínar hafi verið notaðar ranglega geta sent kvörtun til ríkissaksóknara Kaliforníu eða California Privacy Protection Agency (CPPA).

Íbúar Minnesota sem vilja koma á framfæri ásökun um brot á persónuverndarlögum Minnesota varðandi erfðafræðilegar upplýsingar (GIPA) geta sent kvörtun til Minnesota Department of Commerce í samræmi við Minn. Stat. §45.027.

Íbúar Virginíu sem vilja koma á framfæri áskökun á Va. Code Ann. §59.1-593 til §59.1-602 frá 2023 (sem snýr að persónuvernd erfðafræðiupplýsingar) geta sent inn kvörtun til ríkissaksóknara Virginíu.

Íbúar í ríkjum sem telja að persónuupplýsingar þeirra hafi verið notaðar á rangan hátt geta sent inn kvörtun til ríkissaksóknara síns.

 

17.  Viðbótarpersónuverndaryfirlýsing fyrir íbúa Ástralíu

Ef áströlsk persónuverndarlög 1988 (Cth) (Privacy Act) eiga við um meðhöndlun persónuupplýsinga þinna munu þessi ákvæði einnig gilda.

Erfðafræðilegar upplýsingar eru álitnar „viðkvæmar upplýsingar“ eins og kemur fram í persónuverndarlögum. Við munum aðeins safna, nota eða birta viðkvæmar upplýsingar um þig eins og lög leyfa, til dæmis þar sem við höfum fengið samþykki þitt til þess eða söfnunin er áskilin eða heimiluð samkvæmt lögum.

Í tengslum við kafla 8 (réttindi þín og val varðandi persónuupplýsingar þínar), gætir þú átt rétt á að leggja fram kvörtun til viðkomandi persónuverndar- eða gagnaverndareftirlitsaðila í lögsögu þinni. Ef þú ert hins vegar með einhverjar spurningar eða ert með áhyggjur af meðhöndlun okkar á persónuupplýsingunum þínum, eða ef þú telur að við höfum ekki farið eftir þessari persónuverndaryfirlýsingu eða viðeigandi persónuverndarlögum í lögsögu þinni, biðjum við þig um að hafa fyrst samband við okkur með að nota upplýsingarnar í kafla 15 hér að ofan. Við munum rannsaka kvörtunina og ákvarða hvernig við bregðumst við ef við gerum það yfirhöfuð.

 

18.  Viðbótarpersónuverndaryfirlýsing fyrir íbúa Brasilíu

Þessi kafli inniheldur upplýsingar um réttindi og skyldur sem hin almennu gagnaverndarlög Brasilíu settu á framfæri 13.709/2018 ("LGPD") sem gilda þegar:

  • Vinnsla persónuupplýsinga á sér stað í Brasilíu;
  • Þegar þú bíður upp á vörur og þjónustu í Brasilíu; eða
  • Þegar persónuupplýsingum er safnað í Brasilíu.

Lögin veita notendaréttindi eins og lýst er í kafla 8. Að auki við réttindi sem koma fram í kafla 8, veitir LGPD önnur réttindi:

  • Upplýsingar um aðila sem ábyrgðaraðilinn hefur gögn um. Þú getur beðið Ancestry að veita upplýsingar varðandi deilingu persónuupplýsingar með þriðju aðilinum;
  • Að gera þau nafnlaus, loka þeim eða eyða ónauðsynlegum, aukalegum eða öðrum ólöglega unnum gögnum. Vegna meginreglna um fullnægjanleika og nauðsyn getur þú farið fram á að Ancestry geri nafnlaus, loki eða eyði ónauðsynlegum, ósanngjörnum eða ólöglega unnnum persónuupplýsingum;
  • Afturköllun samþykkis. Þú getur beðið um að samþykki þitt til Ancestry til að vinna persónuupplýsingar sé afturkallað hvenær sem er; og
  • Andstaða við meðferð sé hún ófullnægjandi. Þú getur mótmælt rangri vinnslu á persónuupplýsingum þínum.
  • Til að nýta þessi réttindi, vinsamlegast skoðið kafla 8.